Vegna eftirspurnar þá ákveð ég að henda saman smá tutoriali um hvernig á að breyta Modelum í Wow.

Eftirfarandi er dæmi hvernig á að breyta Undead's í Goblins. Ef þú vilt breyta einhverju öðru þá er nákvæmlega sama aðferð, þ.e. ef þú vilt breyta Human í Gnome eða what ever, þá gerirðu nákvæmlega sama nema notar .m2 fileana sem eiga við.

1 skref: Búa til möppu á desktoppinu sem heitir mywarcraftstudios (skiptir engu hvað mappan heitir)

2. Downloada Winrar ef þú átt það ekki fyrir

3. Downloada MyWarcraftStudio _Hér_

4. Hægri smella á MyWarcraftStudio og extracta
allar skrárnar ofan í möppuna sem þú bjóst til í skrefi 1.

5. Opna möppuna og opna svo MyWarcraftStudio prógrammið.

Þetta var fyrsti hlutinn, næst sýni ég hvernig á að breyta Undead's í Goblins.

1. Þegar þú opnar MyWarcraftStudio þá sérðu grænan hring. (Gott)

2. Smelltu á File>Open MPQ Archive

3. Farðu svo í My Computer > C: > Program Files > World of Warcraft > Data

4. Þú munt sjá 2 möppur og 13 files. Opnaðu fælinn sem heitir “patch”.

5. Eftir að þú hefur opnað “patch” þá er aðeins einn folder í MyWarcraftStudio, ekki ýta á hann, það er ónauðsynlegt að gera það strax. Farðu hinsvegar í Suðvestur hornið á MyWarcraftStudio og breyttu barnum frá Database Catche file í “All File(*.*)” . Þá sérðu allar skrárnar í “patch”. Tekur nokkrar sec að loadast.

6. Núna sérðu fullt af folderum, opnaðu folderinn “Character” ekki CHARACTER (í caps). Character>Goblin>Male> og opna GoblinMale.m2

7. Hægri smelltu á GoblinMale.m2 og smelltu á extract file to>, svo extract GoblinMale.m2 á desktoppið þitt.

8. Markmiðið er að hafa Goblins í staðinn fyrir alla Undeads, þannig að það er gott að copya orðin ScourgeMale.m2 í notepad svo þú gleymir því ekki.

9. Loka öllum prógrömmum. Clean slate.

10. Farðu núna úr desktoppinu í My Computer > C: > Program Files > World of Warcraft > Data

11. Búðu til möppu sem heitir Character

12. Opnaðu Character folderinn sem þú varst að búa til og búðu til aðra möppu sem heitir Scourge.

13. Opnaðu Scourge möppuna og búðu til aðra möppu sem heitir Male.

14. Review: Data>Character>Scourge>Male>

15. Opnaðu Male folderinn og dragðu “GoblinMale.m2” sem þú settir á desktoppið þitt áðan í Male folderinn.

16. Endurskýrðu fileinn “GoblinMale.m2” í “Scourgemale.m2”

17. Loka öllum prógrömmum því þú ert búinn.

18. Opnaðu WoW og Lollerskeitaðu í kringum bæinn því allir undead's er goblins núna.

19. Ef þú vilt ekki hafa Undead sem goblins lengur, þá einfaldlega hendirðu Character foldernum sem þú bjóst til, sweet and simple.

Ef þið breytið t.d. Human í gnome, þá verða andlitin frekar fötluð, en ég bý til aðra grein hvernig á að laga það. Hvernig á að breyta húðlit, hári, hljóðum etc.
Einnig í næstu grein mun ég sína hvernig á að breyta skinnum á vopni.

Væl frá vSkandal og Megasonic er afþakkað.
Sniðgöngum Smáís!