Eftir ítarlega endurskoðun á kerfinu sem ég setti hingað inn fyrr í vikunni hef ég ákveðið að gera smá uppstokkun á korkum áhugamálsins.

Allir korkar verða endurnefndir. Á sumum eru smávægilegar breytingar gerðar en á öðrum eru stærri breytingar. Breytingar eru eftirfarandi.

Stórar breytingar
* Spurt og svarað verður breytt í World of WarCraft - Vandamál
* Nýjum korki verður bætt inn, World of WarCraft - Myndbönd. Korkurinn verður háður nokkrum skilyrðum sem ég skýri frá seinna.

Smávægilegar breytingar
* Uppröðun korkanna verður breytt.
* Nafnið á Blizzard Leikir breytist í Blizzard Leikir - Almennar umræður.
* Nafnið á Áhugaspuni breytist í Blizzard Leikir - Áhugaspuni.
* Nafnið á World of WarCraft breytist í World of WarCraft - Almennar Umræður.
* Nafnið á Diablo umræður breytist í Diablo - Almennar umræður.
* Nafnið á Warcraft umræður breytist í WarCraft - Almennar umræður.
* Nafnið á Starcraft umræður breytist í StarCraft - Almennar umræður.

Þessar breytingar eru mitt svar við ýmsum óköntum á áhugamálinu. Þær breytingar sem ég setti upp hér í vikunni halda sér þangað til þetta hefur gengið í gegn. Það verður allaveganna ekki lengur um villst hvað á að fara hvert.

Ég vil endilega fá ykkar skoðun á þessu, það er aldrei að vita hvort maður geti hagrætt þessu einhvern veginn ef almannaálitið á þessu er lágt.

Með kveðju,
Vilhelm