Smásagnakeppni Blizzard Leikir Jæja, þá er mars byrjaður og skólinn ætti að vera hálfnaður eða svo hjá flestum sem í honum eru. Það er um að gera að rísa upp gegn skólaskyldunni í smá tíma, hætta aðeins að spila leikina sem maður elskar, leyfa ímyndunaraflinu að ráða ferðalaginu og SKRIFA um þá leiki sem maður elskar.

Því efni ég í umboði Blizzard Leikja til smásagnasamkeppni þar sem notendur geta nýtt sér hugmyndaflugið og skrifað sögur sem gerast í heimum þriggja leikja Blizzard. Reglurnar eru eftirfarandi:

* Sagan þarf að gerast í Diablo, StarCraft eða WarCraft heiminum.
* Ekki breyta sögunni um of, farið varlega með heiminn sem sagan gerist í. Þið megið á hinn bóginn bæta við söguna eins og þið viljið.
* Sagan má vera allt að 5000 orð að lengd. Minnsta lengd er 1000 orð. Þetta er smásagnasamkeppni, ekki örsagnasamkeppni.
* Vandið málfar og stafsetningu. Það eru meiri líkur á að sagan falli betur í kramið hjá fólki ef hún er vel læsileg.
* Sendið söguna inn sem grein og merkið hana með [Sögusamkeppni] ef hún á að vera tekin gild í keppninni.
* Skilafrestur er til 1. apríl. Sögur sem eru sendar eftir þann dag eru ekki með í keppninni.

Vinningssagan verður valin af notendum, ég mun senda inn könnun sem verður uppi í örfáa daga. Í könnuninni verða listaðar þær sögur sem sendar voru inn og munu notendur skera endanlega úr um hver vinnur.

Gangi ykkur vel!