Fyrir rúmlega mánuði síðan ákvað ég loksins að láta verða af því að kaupa mér World of Warcraft eftir að eldri bróðir minn hafði ítrekað reynt að kynna mig fyrir honum. Ég hafði alltaf vitað af honum en ég var alltaf að passa mig á því að byrja ekki því að ég var viss um að ég myndi verða háður honum. Núna er ég ekki háður en ég spila samt talsvert. Bróðir minn var búinn að vera í leiknum í talsverðann tíma og er með level 60 human warrior, level 57 human rogue, og aðra lærri lvl. Ég ákvað að vera með eitthvað annað en hann og á endanum varð Night elf priest fyrir valinu, veit ekki af hverju en mér hefur alltaf fundist þeir svalir í Warcraft. Svo valdi ég mér server og var það sami server og Brósi er á (Burning Blade). Ég byrja svo að spila og fyrsta daginn var ég gjörsamlega viltur, ég vissi ekki hvað snéri upp né niður né skildi alveg hvað ég átti að gera. Fyrstu 8 levelin tóku ótrúlega langann tíma því að prestur sem skilur ekki leikinn fullkomnlega á von á því að deyja nokkuð oft. Svo ákvað ég að biðja bróðir minn um hjálp, og kom hann með Warriorinn til mín og hljóp með mig á helstu staðina s.s. Stormwind, If og Darnassus. Þegar ég vissi hvað þetta snérist allt um þá fór þetta að verða skemmtilegt! Ég var kominn í lvl 15 og var að questa á fullu og kærastan mín skildi ekki hvað væri að stela mér svona frá henni, Viti menn ég sýndi henni þetta og hún er kominn með Gnome mage fljótlega á eftir. Ég var fljótur að fá Item sýki og fékk ég fyrsta flotta item droppið í Deadmines þegar ég fékk Blátt hring dropp. Síðan þá hef ég verið að questa með brósa og kærustunni minni það gerðist svo fljótt að allt fór að snúast um að koma mér í level 40 því að wow getur verið eins og Amazing race oft á tíðum. Ég gekk til liðs við fáein guild áður en ég fann guildið sem ég er í núna (Edge). Ég var bara ekki að fíla mig í íslenskum guildum (bara mín skoðun). Eftir að ég fékk mountið þá varð kærastan sjúk í að komast í level 40 og var ég þá að spila með henni og fyrir hana til þess að hún væri sátt (ég veit að það eru ekki margir eins heppnir og ég að geta verið að spila leikinn með kærustunni). Núna er ég nýkominn í level 50 og það er ekkert smá gaman að spila núna, núnar er maður á stöðum þar sem maður getur farmað helling og questað hratt og það skemmir ekki fyrir að ég er í frábæru guildi sem er alltaf til í að hjálpa manni.Ég kynntist líka einum strák frá Svíþjóð sem er á svipuðu level og ég og erum við 2 búnir að fara mikið saman úr level 30(klikkar ekki að vera prestur og warrior að questa saman) það munar svo um að kynnast einhverjum sem er tilbúinn að hjálpa manni en maður verður að gera það sama líka. Ég bara get ekki beðið eftir því að komast í lvl 60 til að komast í high instöns og fá epic drops og til þess að geta náð fram hefndum á öllum þessum hordum :).

Kv. Mosaic Lvl 50 Night elf priest
Burning blade