ÉG er að spila Diablo 2 (barbarian) í fyrsta sinn með það markmið að vinna leikinn, áður var ég bara að prófa alla karlana og konurnar.
Ég er kominn í ACT 3 og er nýbúinn að finna hjartað úr galdrakarlinum. Mér finnst Flayer Jungle lang leiðinlegasti staðurinn í Act 3 og er ég feginn að vera búin með hann. Það var soldið erfitt að ná í heilann úr galdrakarlinum, fyrir neðan Jungleinn af því að hann var umkringdur af álfunum leiðinlegu með baunabyssurnar. Þessir karlar eru ömurlegir. Það er erfitt að klikka á þá, elta þá og drepa þennan sem er uppi á öxlunum á hinum.
Eftir að ég komst framhjá þessum hluta leiksins finnst mér framhaldið bara vera auðvelt. Ég var niðri í Sewer level 1 og rannsakaði allt holræsið og drap bara tvo sterka karla(leðurblökur). Svo fór ég niður um hæð og þar voru bara 3 lélegir karlar. Hjartað illa varið.

ÉG hata líka einn stað í Act 2 , Arcane Sanctuary. Ég var búinn að labba allar helvítis leiðirnar áður en ég fann galdrakarlinn sem ég drap nú bara í 3 höggum.
Gleymum ekki smáfuglunum..