Ég tel Starcraft vera með bestu leikjum sem gefnir hafa verið út, ég nenni aftur á móti ekki að hanga á battle.net því þar hef ég engu kynnst nema lag. Ég held ég hafi reyndar eitthvern tíman grúttapað fyrir eitthvað af ykkur þar í þessu fáu skipti sem ég fer þangað. En það sem ég er að spá er að ef eitthvað verður af þessu móti atarna hvort það verði opið fyrir alla og hvar það yrði auglýst, ég myndi gjarnan vilja koma með vinum mínum og tapa þessu móti =) Ég var líka að spá í því hve gamlir þið eruð svona almennt sem eruð í þessu?