Sælir Hugarar.

Ég ætla segja ykkur smá frá Account ferðalagi sem ég lenti á og þeirri vitneskju sem ég öðlaðist á því ferðalagi.

Það byrjaði þannig að ég var á Account á Burning Blade, var það Warrior með rare fit.
Einu char'nir voru lvl 60 warrior og 25 mage.

Einn dag, er ég var að leika mér í Alteric Valley að safna up reputation fyrir Unstoppable Force þá fékk ég sent wisper til mín. Ég svara þessum leikmanni, hann spyr mig útí hitt og þetta. Svo kemur hann að spurningu hvort ég væri til í að swappa account, hann var með lvl 57 Druid sem hann væri til í að trade-a fyrir char-inn minn.

Við skiptumst á Emailum og allt þannig, svo fékk ég að prufa characterinn hans eftir nokkra umræðu.
Mér leist ágætlega á þetta, enda hafði ég aldrei nokkurntímann prufað Druid áður á ævinni, mér fannst einfaldlega geggjað að geta skipt um form og sleppa úr þessum rosalegustu aðstæðum.
Svo varð ég hræðilega leiður á þessu, því þetta var ekkert eins skemmtilegt og ég hélt, ég prufaði nokkrum sinnum að fá fyrrverandi eigandann til að skipta aftur við mig, en án árangurs.

Þá kom að því að ég einfaldlega bjó til kork á erlendri Account trade-ing síðu. Ég fékk nokkur response, en leist ekki á þau.
En svo addaði einhver mér inná MSN ég svaraði honum og komst síðan eftir nokkrar samræður á ensku að hann var að bjóða mér að skipta Epic priest með 6 Epic hluti og epic mount OG lvl 60 Mage með all rare fit fyrir Lvl 57 druidinn.

Ég auðvitað eins og brjálæðingur sagði strax já við þessu boði og var ekkert að, strákurinn stóð við allt sem hann sagði. Svo fékk ég message frá öðrum sem sagðist vilja accountinn sinn til baka. Ég spyr hann, hver hann sé og hann segjist vera upprunalegi eigandinn af priestinum.
Ég undrandi spyr hann af hverju ég ætti að láta hann fá accountinn sinn aftur fyrst hann seldi hann.

Þá segjir hann mér að honum þótti svo vænt um characterinn að hann vildi endilega swappa mér
– 3 Lvl 60 characterum fyrir priestinn og mageinn –

Ég náttúrulega Aftur eins og brjálæðingur Accepta þetta boð hans og er semsagt núna að spila Þessa character's sem eru á Kor'gall.
Þannig fyrir 1 lvl 60 all rare warrior fékk ég:
3 LvL 60 characters með alla 300 í sínu profession, ( Warlock, Priest og orc Warrior )

Ég dýrka alla þessa charactera en vill deila með ykkur vitneskjunni sem ég lærði af þessu.

- - - -

1. Ef þú ætlar að trade-a Account, reyndu að trade-a við einhvern sem þú þekkir.

2. Ef þú ætlar að trade-a account, EKKI auglýsa það hérna á huga.

3. Ef þú þekkir persónuna ekki, kynntust henni og ef hún er að “flýta sér” þá þarftu að kanna málið betur því hún gæti verið að scamma þig með því að swappa ónothæfum account við þig.

4. Taktu Screenshots af samtalinu þínu og hennar og taktu fram í því að ef eitthvað fer úrskeiðis í Trade eða eftir trade (scammar þig seinna) þá gefuru Blizzard hér með leifi til að BANNA báða accounts. og láttu hina persónuna játa þennan skilmála

5. Taktu þér tíma í að trade-a, breyttu password, Email, info og öllu sem hægt er að breyta þegar þú færð accountinn.

- - - -


Þannig að einfaldlega ef þið ætlið að gera eitthvað þessu líkt, veriði þá 100% viss um að persónan sé að segja satt, sé trustworthy og á allann hátt ekki scammer.

……

Ég vill enda þetta með því að spyrja Hvort það sé einhver íslendingur hérna sem spilar á Kor'Gall og ef svo er, hvort væri möguleiki að joina íslenskt guild eða guild með þessum íslendingi í =)

……

Þakka lesturinn.
No shit comments thanks.
The weak can never forgive. Forgiveness is the attribute of the strong. - Mahatma Gandhi