Jæja.

Ég spila lvl 60 troll mage á BB, durginn.
Í dag, 16. júní fór ég til stratholme í Baron raid með fínni grúppu, ég var líka eini mage-inn svo allur magister(mage sett) búnaður hlyti að fara til mín.

Þessi hópur er rosalegir í rollum og ég taldi 3x 99 og 4x 100, ég fæ hæst 93 =(. Þegar við drepum köngulóna droppar þetta rosalega belti fyrir mig http://thottbot.com/?i=37193
Ég passa og við allir randomum, ég fæ 93 og þar með hæsta rollið.

Þegar ég ætla að taka beltið segir leaderinn: “impri(með 83) won.” hann tekur beltið sem er Bop og vill í fyrstu ekki borga mér fyrir það en þegar leaderinn hótar að kikka honum borgar hann mér 3g.
Hefði nú samt svo miklu frekar vilja þetta fína belti.

Parturinn rétt fyrir Baron virkar þannig að maður lokast inni þegar maður fer út fyrir ákveðinn reit, þeir sem eru ekki fyrir innan lokast úti og warlock er sá eini sem getur komið þeim yfir.

Þegar við komum þangað hleypur leaderinn yfir reitinn löngu áður en við erum tilbúnir og ég og einn hunter lokast ÚTI! Hópurinn hreytir út öllum ókvæðisorðum sem til eru að leaderinum sem steingleymdi þessu með innilokunina.

Þeir ná að drepa baróninn og þegar hann deyr opnast hliðið. Ég og hunterinn hoppum kampakátir og viti menn, magister leggings ( http://thottbot.com/?i=23031 ) droppuðu!!!

Ég hleyp eins og vitleysingur til að hirða droppið sem ég átti auðvitað tilkall til, allir passa. En þegar ég kem að baróninum kemst ég að því að ég var of langt frá honum til að geta lootað hann. Þessi fjandans shammy tekur leggings án þess að spurja neinn og Hs isg í burtu.

Ég get lofað ykkur því að ég mun ALDREI grúppa með þessum leader og shaman aftur, það er 100% öruggt!
Strike!