Jæja Elsku Warcraftarnir mínir :)

Ég hef verið að hugsa um að búa til World of Warcraft Video með titilinn “The power of Iceland” ;) Ég er ekki að hugsa lítið með þetta myndband heldur hugsaði ég útí uþb 100-150 manna horde vs Alliance Raid.

Og jú til þess að ná þessu Video-hæfu þá væri málið að fá eins marga íslendinga og mögulegt er ! SAMA hvaða level þeir eru á ;)

Sýnin mín í þessu myndbandi er þannig að ég hugsaði út í uþb 30 warriors í alliance og 30 í Horde, 30 Bogamenn (helst hunters) í hverju liði.

Þannig að basicly væri byrjunin þannig að þetta gerðist á einhverjum rosalega flottum stað og allir þyrftu að vera á Teamspeak - Ventrillo eða IRC (vegna horde.vs. Alliance) samskiptaleysis í WoW.

Byrjunar “skotið” yrði af einhverjum lvl 60 Plate armored leader sem stæði og horfði yfir hópinn sinn, svo beindist myndavélin (fraps) að hinum leaderinum sem myndi gera /roar, /charge eða eitthvað þess háttar.

Þá myndi skjárinn fara á Bogamennina sem þyrftu allir að vera með bogann í hendinni og vera tilbúnir að nota spell svo að kæmi svona grænt dóterí eftir örinni (svo þær sæust betur)

svo myndi heyrast “/charge” hljóðið og bogamennirnir myndu spenna bogann og skjóta allir á sama tíma :)

Þar á eftir myndi öll grúppan labba (*) í áttina að óvinunum. þar myndum við adda inn einhverjum heröskrum úr einhverri bíómynd eða eitthvað álíka til að fá battle-fílínginn í myndina ;) þá gerðu allir Warriorarnir charge spellinn sinn svo að þeir myndu allir þjóta að hvorum öðrum með rauðum línunum sem fylgja þeim öllum þegar þeir nota þetta specal move :)

Þá myndi baráttan byrja og þá yrði einfaldlega barist til seinasta mann ;) 5-10 myndavélar (fraps) myndu sjá um að gera þetta eins flott og mögulegt væri.

Svo þegar allt væri búið og tækist heppilega þá myndum við fá einhvern góðann klippara til að klippa þetta video eins flott og mögulegt er og setja eitthvað flott lag á bakvið. Vanalega í svona baráttu myndum eru oft notaðar sinfóníur. Það myndi örugglega virka vel fyrir þetta :))


… The End …

endilega komið með comment um hvort þið haldið að þetta væri mögulegt, hvað mætti bæta, hver getur klippt, hverjir eiga Fraps, hvernig samskiptaaðferðir væru mögulegar til að tala saman á milli horde og alliance….. osfr ;)

… þakka fyrir mig …
The weak can never forgive. Forgiveness is the attribute of the strong. - Mahatma Gandhi