Góðan daginn kæru notendur

Ég vil byrja þessa grein á því að afsaka mig fyrir að vera svona lítið aktívur, við erum búnir að vera það flest allir stjórnendurnir á þessu áhugamáli, ég ætla að reyna að tala mig til í andlitinu og vera aktívari

allavegna, ég bara varð að gera grein um þetta, því ég er ýkt stoltur af áhugamálinu okkar um þessar mundir!
af hverju? jú, það er búið að vera vandamál með tölur yfir vinsældir áhugamála síðustu mánuði, en nýlega gaf JReykdal út lista yfir síðustu 4 mánuði, og þar sjáum við hvað áhugamálið okkar er að blómstra!

September: 31. sæti
Október: 27. sæti
Nóvember: 14. sæti
Desember: 10. sæti

Þetta er náttúrulega bara snilld og eitthvað sem við getum öll verið stolt af :)

Ég er ennþá að reyna að vinna í því að redda íslenskum forum fyrir WoW, er ekki að ganga alltof vel, en ég vildi bara óska ykkur öllum til hamingju með þetta :)