Finally almennilegur leikur Jæja hérna er smá battlereport.

Ég er nýbyrjaður að spila Terran eitthvað af viti (taka smá toss pásu :) og fór á móti öðrum Terran á Lost Temple.

Jæja allavega er ég á 12 o´clock staðnum og hann á 3 o´clock staðnum. Ég ætla mér að fara bara standard tank&wraith combo en hef náttúrlega aldrei spilað það sjálfur bara séð það þannig að ég er soldið klaufskur við það. Allavega er ég kominn með nokkra wraitha og tanka og þá heyri ég alltíeinu (you base is under attack). Er hann ekki búin að setja 4 tanka niðri á low groundinu og er að prumpa á stargatein mín :( með wraitha til að sjá fyrir sig. Ég rík með mína wraitha á hans á meðan tankarnir mínir eru á leiðinni. En ÚPPS ég gleymdi að rannsaka clocke fyrir wraithana mína :( hann clockar sína og nær 2 hjá mér áður en skannin nær að grípa inní og vinnur wraith vs wraith fightinn. Tankarnir mínir eru búnir að ná 2 hjá honum en wraitharnir hans drepa mína :( Allavega ég var búin að senda fljúgandi CC á eyjuna uppi vinstra meginn og er að securea hana. Ég bý til nokkra gollies(goliaths) til að hrekja wraithana úr main baseinu mínu og er að reyna að tóra. En eftir stutta stund kemur þessi góði hópur af Siege tönkum og pluffar niður baseið mitt. Ég næ að flýja með nokkra gollies og meirihlutan af vinnuköllunum mínum á eyjuna og er að pumpa turretum þar líka. Jæja ég á nóg af gasi (hann drap stargatein mín svo fljótt hafði ekkert mikið við gas að gera) en lítið mineral en er að vinna í því með vinnuköllunum á eyjunni. Á eitthvern stórundarlegan hátt tekst mér að koma 3 Stargateum, 2factoryum, 1 fljúgandi sci facility, nóg af supply depotum og turretum á eyjunni til að halda mér gangandi. Ég er að pumpa none stopp wraithum úr 3 stargateum og er að researcha ship damage og armor og NEITA að gefast upp :) Allavega ég er kominn með 12 wraitha og á scanna sem betur fer á eyjunni (byggt áður en academyið var drepið) og fer í könnunarleiðangur. rekst á exp. sem er að byggjast og drep það. Flýg á næsta exp. stað og nei er hann líka þarna drep það og 1 turret :) Allavega ég drep 4 exp allt í allt með 12 wraithum :) Hann greinilega hélt hann væri með complete map control og var ekkert að byggja varnir. Ég scanna aðalbaseið hans og sé að hann var að pæla í mass Battlecruiserum til að taka eyjuna mínu út. En einsog þið vonandi vitið þá rústa clocked wraithar BC virkilega mineral effectivly og það er það sem ég þarf. Eyjan er að verða mineral laus og ég á 30 wraitha og ekkert annað. Og jú og dropship :) ég flýg með einn SCV á 9 o,clock main baseið og byrja að byggja CC. Allir wraitharnir mínur eru fyrir ofan expansionið hliðinná til að passa að enginn komi og labbi þangað til að kanna þetta. En já greyið guttinn sendi 10-12 siege tanka þangað og wraitharnir mínur eru að plugga þá alla á meðan þeir eru að labba framhjá. Þá fyrst byrjar actionið. hann kemur með SLATTA af wraithum og ræðst á mig ég er gífurlega fljótur og clockea mína og scanna strax ef hann myndi clockea sína. En guttinn er greinilega ekki mjög góður í að nota hotkey fyrir scannan né wraithana og ég er búin að drepa helminginn af hans wraithum áður en hann scannar ekki enn búin að clockea sína. Ég scanna samt aftur bara til að missa ekki af dýrmætri secúndu í wraitha fight (ganga gífurlega hratt fyrir sig). Og ég vinn með um 12 wraitha eftir. Þá koma þessir nýju og fínu battlecruiserar og ráðast á mig en ég með mín 2-2 upgrateuðu wraitha tek þá í rassgatið þó þeir sjái wraithana mína :) Ég greinilega drap alla kallana hans vegna þess að hann segir gg og fer :) Ég réðst aldrei einu sinni á aðalbeseið hans. Sá að hann átti bara 30 kalla eftir sem hafa örugglega verið SCV´s og nánast engan pening í endascoretöflunni.

Þetta sýnir bara að maður á aldrei að gefast upp. Hinn playerinn getur gert vitleysur og þú hægt og rólega náð leiknum á þitt vald aftur. Hann t.d. átti ekki að halda að hann væri búin að vinna og byggja 4 exp. í einu bara með því að drepa þau eyddi ég 1600m + fullt af SCVum hjá honum fyrir ekkert loss hjá mér. hann notaði hotkey illa og tapaði gífurlega mörgum wraithum útaf því. Hann hefði átt að scanna eyjuna mína og sjá hvað ég var að gera og bara byggt um 8 Valkyrea og þá væri wraithadótið mitt úr sögunni. En já hann sem betur fer fyrir mig var of fastur í sinni strategyu í starcraft að hann kunni ekki að víkja frá reglunni. Þó að eitthver segji að þú eigir að nota þessa tactík í þessu mapi á móti þessu race þíðir það ekki að þú verðir akkúrat að gera bara það. Bara muna það kæru huga félagar að það er alltaf hægt að fynna nýja hluti sem passa saman í StarCraft og sum unit sem enginn notar (t.d. Valkyre) eiga sína tíma í leiknum.

Með kveðju DeadlyShadow