World Cyber Games er heimsmeistarakeppnin í tölvuleikjum, þar sem keppt er um peningaverðlaun í Counter-Strike Condition Zero, Warcraft III The Frozen Throne, Stracraft Broodwar og fleiri.
Ég ætla að fjalla um hin ýmsu underlegu úrslit í Warcraft III keppninni.
Fyrst voru það heilmikil vonbrigði fyrir ábyggilega meira en 50% af þeim sem fylgdust með leikunum. SK.MaDFroG og SK.Insomnia voru slegnir út strax eftir 16 manna úrslit. Þessir kappar voru talnir vera líklegastir til að keppa til úrslita. MaDFroG hafði verið frekar ósannfærandi allt heila tournamentið m.a.s með því að tapa gegn Brassanum Levinati í æsispennandi leik í Gnoll Wood.
Margir notuðu svokölluð “smurf-nick” á mótinu. Þar var á meðal fyrrum meðlimur asíska clansins SAINT, sem var keypt af þýska claninu SK (Schroet Kommando) og gert að SK.Asia, SK.Zacard. Þessi Orc notandi bar undir nafninu WelComeTo og hann rúllaði gegnum bæði riðilinn sinn, þar sem hann tapaði aldrei, og single elimination. Þess vegna endaði hann í úrslitum gegn 4K.Grubby, einnig orc notanda.
Grubby hafði einning farið gegnum mótið taplaus, og margir hafa haft orð á því að engin tilviljun hafi verið að tveir Orcar hafi komist í úrslit.
Fyrsti leikurinn fór fram í Lost Temple og vann Zacard helst út af því að hann hafði byrjað á því að leggja undir sig nýja gullnámu. Hafði hann mismunn á gulli í sinn hag og þess vegna fleiri Raiders, Grunts og Kodo Beasts.
Grubby vann seinni leikinn, sem gerðist í Gnoll Wood. Zacard hafði þá fengið sér Firelord sem seinni hetju. Þá voru stigin 1:1 og það var komið að úrslitaleik.
Þriðji leikurinn var leikinn í Turtle Rock. Meðan Grubby var vonleysislega að reyna að gera litlar árásir á höfuðstöð Zacards, var hann að creepa, og var kominn með góðan mismunn á hetjustigum. Þó var Grubby að creepa hér og þar á milli, samt var Zacard alltaf meira sannfærandi, þangað til hann ákvað að enda leikinn með árás ásamt turnum í stöð Grubbys. Dæmið snéri alveg við þegar Grubby náði vel að verjast þessum turnunum. Þá fór leikurinn að gerast meira á svæðinu þar sem Grubby hafði ákveðið að leggja undir sig gullnámu. Eftir gríðalega spennandi atburðarrás vann Grubby með því að drepa fyrst Shadow Hunterinn hans Zacard og svo Far Seerinn hans stuttu seinna. Þá var allt vonlaust fyrir Zacard því hann hafði enga gullnámu, Grubby hafði tvær hetjur á sjötta stigi en hans voru báðar látnar.

www.worldcybergames.com