Hvernig skal öðlast Annihilus? Ég ætla að flétta af leyndarmálinu og gefa ykkur leiðbeiningar hvernig skal ná sér í þetta gersemi. Ef þið eigið ekki einn slíkan, þá er þetta leið til að öðlast sinn fyrsta Annihilus (Anni).

-Þið getið aðeins fengið Anni í HELL difficulty leikjum, svo þið verðið að klára NM áður.
-Gott er að starta leiknum upp í “window mode” en það er gert með því að bæta -w aftast við command skipunina í shortcuttinu sem er á desktoppinu ykkar, t.d. “D:\Games\Diablo2\game.exe -w”
-Búið til leik í HELL difficulty (gerið password ef þið viljið vera einir um að drepa DiabloClone DC)
-Nú má fara í command prompt (start -> run -> cmd) og skrifa þar: “netstat -n” Tölurnar sem koma upp er listi yfir öll connectionin ykkar og þið eruð að leita eftir IP-tölu á porti 4000, á forminu xxx.xxx.xxx.XXX:4000
-Síðustu 3 x-in (XXX) segja ykkur númerið á servernum sem þið spilið á. Þessi tala rokkar frá 30 til 180. Hún breytist alltaf þegar þið gerið nýjan leik.
-Nú kemur það sem skiptir máli!!! Þessir serverar eru oft táknaðir sem HOT, ACTIVE eða SLOW. Við viljum vera á HOT server, en ACTIVE ef enginn er HOT o.s.frv. Við finnum út úr þessu hvort einhver sé hot, með því að fara á heimasíður eða á ircið:

heimasíða: www.d2forum.com (sjá t.d. USEast IP games)

irc: Server: irc.d2jsp.org
channels: USWEST: #uswest-dclone
USEAST: #useast-dclone
EUROPE: #europe-dclone

-Ég mæli með báðum þessum aðferðum, þið hafið bara allt þetta í gangi þegar þið spilið leikinn og sjáið hvaða serverar eru HOT hverju sinni.
-Þetta virkar þannig að einhverjir eiga tugi (hundruðir, jafnvel þúsundir) SOJs, úr 1.09 patchinum. Þegar þeir selja einn SOJ, þá hækkar SOJ countið um 1. Svo þarf bara að selja ákveðið marga SOJ til að DC poppi upp á þeim server.
-Fólk tekur sig bara til og ákveður: “Hey! Seljum okkar SOJ á .134” Þá er málið að búa til leiki, þangað til maður hittir á server sem endar á xxx.xxx.xxx.134:4000. Svo tekur maður bara eftir því þegar counterinn hækkar og hækkar uns maður fær skilaboðin: “Diablo walks the Earth”
-DC birtist sem næsta superunique monster, t.d. ef þú ert í Rouge Encampment, þá kemur DC í stað Bishibosh í Cold Plains (listi yfir Superuniques er á heimasíðu Diablo2 www.battle.net/diablo2exp
-Svo drepuru hann og færð Anni!

Nú á ég einhverja 5 Anni, en gæti átt svona 50. Ég bara er svo óduglegur að ná mér í svona.

ATH!! Ekki er hægt að eltast við leiki ef DC er búinn að poppa upp. Ef maður missir af því, SO BE IT! Snúa sér að næsta server - sem jafnvel er bara slow. Þið áttið ykkur sjálf á því hvaða munur er á HOT - ACTIVE og SLOW…

góða veiði, því þið hafið rétt í þessu öðlast titilinn: “Diablo-Hunter”

kv,
jericho