Jább. Blizzard lætur sér greinilega ekki nægja að gefa út þetta Gryphon myndband sem þeir gáfu út á þriðjudaginn heldur voru þeir að gefa út nýtt myndband sem inniheldur ókláruð módel úr opnunarmyndbandinu í World of WarCraft. Myndbandið er hvorki meira né minna en fjórar mínútur að lengd. Eins og áður sagði sýnir það ókláruð módel á ýmsum stigum framleiðslu einnar myndar, en þrátt fyrir óslípað útlit sumra persóna þá lítur þetta samt sem áður mjög vel út.
Myndbandið má finna í skráarkubbnum á forsíðu áhugamálsins. Það tekur 68.2 megabyte og ég vona að þið hafið gaman að þessu þar sem ég vil ekki hugsa til baka um næstu mánaðamót og fara í fýlu vegna þess að enginn vildi hlaða niður myndbandinu sem ég eyddi limit í að koma inn til landsins. :/

IGN hefur einnig sett upp viðtal við Matt Samia, myndbandaleikstjóra Blizzard. Viðtalið má finna í heild sinni <a href=”http://pc.ign.com/articles/496/496905p1.html”>hér </a>.
Ef tengillinn virkar ekki nægir að hægri smella á hann, velja Copy Shortcut og líma svo inn í address bar. . .

Kk.
Vilhelm