minn fyrsti Annihilus Eftir að hafa lesið mig mikið til um hvernig ætti að finna Diablo-Clone (DC), eða Uber Diablo, tókst mér loksins að elta hann uppi og finna hann.
DC spawnaði í stað Rakanishu og baráttan var hafin. Ég var með lvl81 hammerdin sem átti engin ofurvopn. Með mér var lvl 81 barb og við börðumst saman gegn þessu kvikindi.
Veit ekki hvort þið hafið barist við hann en við náum lífinu ekki niður meira en ca 1%. Ég ákvað að koma með sorcina mína og nota static field. Milli þess sem DC castaði Armageddon, komst sorcin inn á milli og staticaði hann niður í 50% af lífinu. Ég var snöggur að disconnecta og joina aftur með hammerdininum mínum… Félagi minn (barbinn) sagði að DC hafði healað sig á örfáum sekúndum. Ég reyndi að koma með lvl 87 javazon með Lightning Fury, en það gekk nú aldeilis ekki og lvl20 valkyrjan dó yfirleitt í einu höggi…
Eftir 30 mínútna bardaga datt okkur í hug að leiða DC að BloodRaven og það gekk of hægt fyrir sig. Svo ég fór á #diablo.is á ircinu og bað um hjálp. Sindri var snöggur að svara neyðarkallinu og lofaði mér því að taka ekki charminn góða. Hann átti sorc, og við 3 saman gátum þetta ekki. Sindri sagðist eiga annan hammerdin og kom með hann. Á meðan sótti ég hjálm með “Prevent monster heal” og þá fór þetta nú að ganga. Sindri spurði hvort hann mátti koma með vin sinn sem vildi hjálpa. Við vorum nú 4:

-Hammerdin
-Javazon
-Barb
-Trap assassin (vinur sindra)

Þetta fór loksins að ganga og þegar ég var búinn með mana og fór í town, heyrði ég að þeir drápu hann, en þeir stóðu við orð sín og ég endaði með Annihilus charminn (sjá mynd). Fínn charm og við ákváðum að láta hvorn annan vita ef við fyndum annan DC. Hugsa bara um að fara í smá DC hunt um helgina :D

góðar stundir,
jericho