Ég vildi bara tjá mig yfir því hvað það sé leiðinlegt að spila leikinn þegar maður er kominn í Nightmare erfiðleika því öll svona ofur skrímsli sem eru með nokkra auka menn sér við hlið, þið vitið um hvað ég er að tala, já þau sem eru með “Lightning enchantment” eru allt of erfið maður slær í þau, maður fær straum, maður er DAUÐUR. Eina leiðin til að komast lifandi frá þessu er að ef þú ert Barbarian þá geturðu notað “Bash” og þá lemurðu skrímslið sem um leið fer aðeins frá þér og straumurinn kemur seint eða kemur bara ekki. Reynið þetta ef þið eigið í sömu erfiðleikum og ég.
Ef þú ert staddur í holu. Hættu þá að grafa!!