minn eigin hammerdin ég prófaði að fara eftir netleiðbeiningum sem gáfu uppskrift að Hammerdin, þ.e.a.s. paladin sem notar eingöngu blessed hammer, holy shield og concentration aura (slóðin er www.diabloii.net og þar inni á forums fyrir paladins).

Málið er einfalt. Hámarka blessed hammer, concentration, vigor og blessed aim. Hamrarnir hafa nefninlega synergies frá vigor og blessed aim og damagið hækkar um 14% fyrir hvern punkt sem settur er í þessi synergies. Damagið er því fljótt að hækka, og eins og stendur er ég á lvl 72 og hver hamar eyðir 3900-4000.
Ég náði mér í item sem gefa gott resist og faster cast rate. Defencið fær því að sitja á hakanum, enda hef ég ekki nema ca.100 í strength og get því ekki klæðst brynjum með hátt def. Nánast allir stat points fara í vitality.

Paladinin er ekki mjög góður SOLO char en ég var um helgina að spila hann með lvl 80 necromancer og við kláruðum HELL diff auðveldlega og Ancients voru easy peasy. Necroinn hjálpaði mikið með skeletons sem taka öll höggin.
Maður er smá stund að ná tökum á hömrunum, þar sem þeir svífa í hringi og erfitt að miða á einhvern einn kall. Maður verður að standa helst neðan eða vinstra megin upp við hann til að vera öruggur um að hitta.
Vegna þess hve hammerdinin hefur litið def og er ekki háður neinu elemental damage, má einbeita sér að því að ná góðu magic find hlutum, því hamrarnir eyða það miklu að itemin skipta minna máli en ella.

Ég hef joinað marga leiki þar sem margir lvl 70+ eru að rétt að byrja í hell diff en ég er búinn að klára það! Það er vitað að 1st kill hjá Andy gefur oft ágætis drop, svo ég hef verið að stunda ljótan leik undanfarið… þ.e. að stela þessu droppi.
Það virkar þannig fyrir sig að ég joina leik sem kallast of “ACT1 help plz” eða eitthvað álíka. Ég flýti mér niður í catacombs lvl2 og hleyp (MEÐ 20 í Vigor - maður hleypur HRATT) niður á lvl 4 catacombs. Þá er gaurinn yfirleitt búinn að bjóða með í PARTY. Ég drep allt niðri með öflugum hömrum og kemst að Andy einni. Hún er heldur ekki mikil fyristaða, jafnvel þótt við erum 8 sem erum inni í leiknum.
Rétt áður en ég drep hana, geri ég accept og kemst í partyið, og drep Andy. Hún gefur gott gott drop oftast.
T.d. fékk ég sitthvorn unique hringinn í NM difficulty í sitthvoru runninu hvort á eftir öðru.
Þetta er ljótur leikur að ég held, því ég held ég klári questið fyrir þessa gaura sem eru með í partyi. Ef ekki, þá er þetta ágætis leið til að fá góða hluti.

góðar stundir,
knox