Sælir kæru WC3 spilarar,

Með stolti kynni ég fyrir ykkur stóra WC3 keppni á Smell 4 sem verður haldin stærri en nokkru sinni fyrr í allri Laugardalshöllinni.

Keppt verður 2v2 og er búist við gífurlega spennandi keppni þar sem margir hinna bestu spilara landsins hafa tilkynnt komu sína.

Glæsileg verðlaun verða veitt við verðlauna afhendingu á sviðinu á Sunnudeginum.

Takið vel eftir að í þetta skiptið er ENGIN netskráning. Það er bara hægt að versla miði í verslunum Og Vodafone frá 1.september.
Þeir sem eru í viðskiptum við Og Vodafone og kaupa miða 1.sept fá 500.kr afslátt (eða 2500kr).

Fyrstu 300 sem mæta svo á mótið fá glænýjan Smells-bol.
Ég hvet ykkur til að lýta á nýju heimasíðu Smells www.smellur.net
Einhverjar spurningar, spyrjið stjórn á #smellur á IRC.
Vonast til að sjá sem flesta WC3 spilara í hörkuspennandi keppni í Laugardalshöllinni 12-14 sept.
Nú er um að gera að fara í næstu verslun Og Vodafone og ná sér í miða.

Nánari details um skipulag keppninnar og reglur hennar verða birtar á www.smellur.net eftir 1.sept.

Sjáumst hressir.

kv, GrapeJuice.