Secret Level Núna er vinstri höndin á mér í gipsi svo að ég get ekki spilað ladder í einhvern tíma =( en þá ákvað ég bara að reyna að klára campaign, hef verið freka latur við það.

Ég var kominn í Blood Elves campaignið í chapter three þar sem maður á að koma sér útúr dýflissum Dalaran. Þegar ég var kominn neðst fyrir miðju þá sá ég 3 kindur, hver með einn kassa fyrir framan sig.

Ég prófaði nokkrum sinnum að stíga með köllunum í kassana en fattaði svo að það hlyti að þurfa að stíga á þá í ákveðni röð svo að eitthvað gerðist. Þetta er röðin (smá kort sem ég gerði og er stoltur af =)):

______hlið______

kind.1
kind.3 Inngangur<–
kind.2
________________

Eftir þetta opnast hliðið og það eru 5 logandi kindur fljúgandi í kringum spurningamerki sem segir:

“Secret level powerup, unlocks a secret level!” og ég labbaði að því og eftir að ég kláraði borðið þá kom Secret level.

Þetta var svona Tower Defence það sem Lord Garithos sendir óvinaheri til að skemma “The Portal” sem Blood eves eru að flýja í gegnum til Outlands.

Það voru kannski flestir búnir að fatta þetta en þetta hjálpaði kannski einhverjum. Þess má geta að þessi grein/korkur var skrifaður með einni hendi og tók alveg askoti nógu langann tíma að skrifa þetta.