22.-24. ágúst verður skjálfti, og meðal annars verður keppt í wc3 2v2 og 1v1 (1v1 er einungis til gamans og eru því engin verðlaun). Ef ekki næg þáttaka fæst, eru allar líkur á því að wc3 verður tekinn af skjálfta, svo ég vil hvetja alla þá sem hafa áhuga á því að spila wc3 2v2/1v1 að skrá sig á www.skjalfti.is/skraning/ föstudaginn kemur kl.18:00. Plássið er fljótt að klárast og er því best að skrá sig sem fyrst. Þó svo að þið séuð ekki viss um hvort þið munið mæta, þá sakar ekki að skrá sig, vegna þess að það þarf hvort eð er að staðfesta seinna og þeir sem ekki staðfesta sig detta af listanum, no hard feelings.

Einnig vil ég biðja alla þá sem eru að spá í að mæta um að segja það hér, því margir miða þáttöku sína við mætingu annara og vilja ekki vera að mæta á 3ja manna mót. Með því móti geta allir séð hve mikill áhugi er fyrir þessu o.s.frv.
Takk fyrir

Drake | myrkvi