Hér ætla ég að skrifa um mods á Diablo 2. Mods lít ég ekki á sem svindl eða hacks þar sem þau virka ekki á Realms á Battle.net og breyta leiknum yfirleitt það mikið að maður fær aðra tilfinningu fyrir honum.

Fyrir einhverju síðan var ég kominn með dálitla leið á Diablo 2 eftir mikkla spilamennsku. Mér fannst því upplagt að athuga hvað væri hægt að gera til að brjóta upp þessa hefðbundnu spilamennsku og fór að sjá hvort til væru aðrar útfærslur af leiknum.
Fljótlega fann ég “enhanced drop” mods sem gerði það að verkum að creatures droppa nánast bara uniques og set items. Mér fannst það ekki nóg og leitaði því áfram.
Þá fann ég eitthvað sem hét “boss mod”. Mod'ið það breytti leiknum þannig að í Act 1 (rétt fyrir utan Rogue Encampment) voru ekkert nema Andariel og Duriel (í fleirtölu). Þegar komið var í Bloodmoor rakst maður strax á Mephisto og svo fljótlega Diablo og Baal, lítið fór fyrir öðrum creatures. Mod þetta hafði (að mig minnir) bara eitt act. Ég var því fljótur að afskrifa það.
Næst prófaði ég Orbital Fusion. Það finnst mér skemmtilegt mod þar sem það breytis sögunni ekkert, leyfir þér hinsvegar að komast á lvl 250. Hægt er að fara mjög hratt í leikinn þar sem búið er að breyta xp kerfinu og er maður því sköðugt að hækka um lvl. Maður þarf ekki að eyða skill-punktum í “pre-requirments”, setur bara punkta í það sem þú vilt. O.F. býður þér líka upp á að búa til nánast hvaða item sem er í Horadric Cube. Til að fá eitthvað sérstakt unique setur maður basic útgáfu af item'i í cube með tir rún og ýtir á transform. Þetta er því góð leið til að finna hvaða char henntar manni best og upplagt til að gera tilraunir. Hægt er líka að geyma mun meira, því Stash kistan og inventory'ið hefur verið stækkað umtalsvert. Einnig er líka hægt að kaupa allar rúnir, charms (random), alla gems og rejuivies í bæjum.

Þetta er það litla sem ég hef prófað af mods. Af nógu er að taka því til eru allskonar mods sem innihalda ekki bara svona “litlar” breytingar. Til eru mods sem gera þér kleypt að spila Character Class'a sem áður eru óþekktir. Einhver gekk svo langt að búa til Baldur's Gate útlit á Diablo 2. Sum leyfa þér að fara í gegnum leikinn sem Mephi og ertu því að berjast fyrir “hitt liðið”.
Nú langar mig svoldið að vita hvort einhverjir hafi prófað einhver mod? Ef einhver hefur prófað eitthvað væri gaman að fá reynslusögu af því.

Eftirtaldir linkar innihalda lista yfir mods.
http://www.diablo2mods.com/ModList.html
http:// www.planetdiablo.com/theforge/mods.html
http://www.inf oceptor.com/custom/diablo2/tc.shtml

Góðar stundir.
Góðar stundir.