Ok, Hef mjög mikið verið að fylgjast með U.S East og Europe, og ég hef bara verið að sjá u.þ.b 5 active spilara sem eru íslenskir. Sem er afar slæmt mál.


Mér finnst afar leiðinlegt að þetta áhugamál sé að deyja út, þarsem þetta er einn af uppáhaldsleikjunum mínum, man í gamla daga þegar íslendingar rúlluðu alla þessa útlendinga upp :)

Ég var bara að fá leikinn aftur, og hef EKKERT séð fólk sem var í Friend listanum mínum, Sem er líka Slæmt mál

Man eftir vini mínum sem kallaði sig *snudur, Hann var geðveikt aktívur og allt slíkt(Europe) Var alltaf að hjálpa íslendingunum og gefa þeim hluti.
Svo bara ALLT í einu, þá hvarf hann :( Hann var ekki með irc né neitt þannig að maður gat ekki talað við hann.

Þið ættuð að taka hann til fyrirmyndar og taka fram gamla D2 LoD eða bara venjulega aftur upp og byrja spila.

Afar leiðinlegt að sjá þetta áhugamál falla :(

Kv, Hjalti
Europe: *hjaltmanninn
Us East: *FaithlessOne
(\_/)