Já, drengir mínir og stúlkur. Diablo 2 demóið er komið út. Ástæða þess fyrir því hvers vegna Diablo 2 demóið kom út 6 mánuðum á EFTIR leiknum er að Blizzard tímdi ekki neinum forriturum til að vinna við verkið, enda hefðum við ekki fengið leikinn sjálfann fyrr en í ágúst ef þeir hefðu gert demó.
Demóið inniheldur Barbarian, alla fyrsta levels skillana og um það bil 10% af act 1. Tvö fyrstu questin í actinum eru í demóinu. Ef þér fannst Stress Testið snilld og ert leiður yfir því að geta ekki spilað það lengur, þá getur þú byrjað að ná í það NÚNA og rifjað upp fyrstu kynni af leiknum.

Helmur the almighty