Núna eru BT farnir að selja pakka fyrir Diablo2 sem heitir The Wanderer sem að vinur minn keypti fyrir mistök um daginn vegna þess að hann hélt að þetta væri expansion pakkinn.
Nú svo þegar hann kemur heim og skellir þessu inn þá kemst hann að því að þetta er ekkert nema einhver cheat pack, þar sem er búið að safna fyrir mann items, rare unique og set og allkonar svoleiðis drasli.
Þessi pakki er ekki gefinn út í samvinnu við Blizzard heldur bara einvherjir einstaklingar sem hafa gefið þetta út.
Ég mæli ekki með að fólk fái sér þennan pakka því þetta er í raun bara svindl pakki og skemmir bara fyrir manni leikinn að öllu leiti.