Þessa er glæsilegur, Bond rétt skrapp frá.
Tommi Makinen stendur hér við glænýjan Mitsubishi Lancer Evolution WRC sem er fyrsta WRC útgáfan af Lancer. Helstu nýjungar eru nýtt boddý, ný afturfjöðrun og betri útblástursgrein ásamt skilvirkari intercooler. En þrátt fyrir að vera WRC bíll notar hann samt sem áður mikið af gömlu Evo VI íhlutunum. Innanhús hjá Mitsubishi gengur bíllinn undir nafninu Step 1 WRC en Step 2 útgáfan er væntanlega snemma á næsta ári og þá með nýrri og betri íhlutum.
VW W12 - Nýr ofurbíll frá VW (reyndar sá fyrsti). W12 vél, sú sama og í dýrasta Audi A8, með betra pústi og aðeins kraftmeiri. Verð á að vera undir 10 millum og hæamarkshraði að vera nálægt 310 km/klst með aðstoð 420 hestafla. Ég held að hann eigi að koma á markaðinn árið 2003 en ekki selja sálina upp á það…