Bilar Tommi Makinen stendur hér við glænýjan Mitsubishi Lancer Evolution WRC sem er fyrsta WRC útgáfan af Lancer. Helstu nýjungar eru nýtt boddý, ný afturfjöðrun og betri útblástursgrein ásamt skilvirkari intercooler. En þrátt fyrir að vera WRC bíll notar hann samt sem áður mikið af gömlu Evo VI íhlutunum. Innanhús hjá Mitsubishi gengur bíllinn undir nafninu Step 1 WRC en Step 2 útgáfan er væntanlega snemma á næsta ári og þá með nýrri og betri íhlutum.