Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.437 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Nettu

Bilar (0 álit)

Bilar Nýa Integran frá Acura með smá sportpakka :)

Bilar (0 álit)

Bilar American Honda Motor Co. hefur nú birt fyrstu opinberu myndir af nýju útliti Honca Accord en bíllinn fer í sölu í USA í september nk. Nýtt útlit Honda Accord, sem var mest seldi bíllinn í USA árið 2001, felur ma í sér að útlitslegur munur á milli sedan og coupe útgáfanna hefur verið aukið og eiga þær það eingöngu sameiginlegt útlitslega séð að vera með eins framljós. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Honda var coupe útgáfan hönnuð með það að markmiði að bjóða uppá “The Ultimate Sport Accord” og þá ma með það að markmiði að greina hann enn fremur frá sedan bílnum. Ytri mál nýja bílsins er nokkurn vegin hið sama og þess bíls sem hann leysir af hólmi en cd stuðullinn (cd = coefficient of drag) hefur hinsvegar lækkað niður í 0.29. American Honda Motor Co. áætlar að selja um og yfir 400.000 eintök af bílnum árið 2003 sem þýðir að heildarsala á Honda Accord í USA ætti að fara yfir 8.000.000 eintök síðan bíllinn var fyrst kynntur þar árið 1976.

Bilar (0 álit)

Bilar Ég sá svona bíl í sumar á Ítalíu og þetta eru ótrúlega skrítnir bílar. Þeir eru verulega flippaðir en samt eiginlega ljótir. Ég var að velta fyrir mér hvort að við myndum sjá svona bíl hér heima, satt að segja finnst mér ótrúlegt að B&L skuli ekki sína þennan bíl því hann myndi örugglega vekja gífurlega athygli.

Bilar (0 álit)

Bilar Löggan í Texas býr greinilega ekki við lélegan bílakost :)

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr Audi A8 er væntanlegur á markað og kemur td í sölu í UK í maí á næsta ári. Þetta ku vera fyrsti bíllinn í nýrri kynslóð Audi bifreiða og með honum eru línur næstu kynslóða A2, A3, A4 og A6 lagðar. Bíllinn verður boðinn með tveimur V8 bensínvélum. Sú kraftminni er 3.7 lítra, skilar 280 hestöflum og tryggir hröðun upp í 100 km/klst á 7.3 sekúndum. Sú kraftmeiri er 4.2 lítra, skilar 335 hestöflum og tryggir hröðun upp í 100 km/klst á 6.3 sekúndum. Hámarkshraði er takmarkaður við 250 km/klst í þeim báðum. Ein af nýjungum í Audi A8 er 6 gíra sjálfskipting með Tiptronic handskiptimöguleika en einnig verður hægt að nota handskiptingu sem er í stýrinu en sá búnaður hefur verið þróaður í Audi R8 í Le Mans kappakstrinum. Nýji Audi A8 verður að sjálfsögðu smíðaður úr áli eins og fyrirrennari sinn sem var kynntur árið 1994. Audi A8 verður kynntur opinberlega á The Paris Motor Show í september nk.

Bilar (0 álit)

Bilar Skoda hefur nú birt fyrstu myndir af Wagon útgáfu af Octavia RS en bíllinn fer fljótlega í sölu undir nafninu Skoda Octavia RS Combi. Þetta er í raun nákvæmlega sami bíllinn og sedan útgáfan fyrir að vera Wagon og með litlum spoiler með innbyggðu ljósi aftast á þakinu. Bíllinn er með sömu 180 hö túrbóvél og er gefinn upp í 100 km/klst á 8.0 sekúndum miða við 7.9 hjá sedan útgáfunni. RS lína Skoda kemur svo enn til með að stækka seinna í haust þegar Skoda Fabia RS verður kynntur til sögunnar. Til gamans má svo geta að í Bílablað Moggans þessa helgina er birt reynluaksturgrein um Skoda Octavia RS.

Bilar (0 álit)

Bilar Einn af skemmtilegustu ítölsku bílunum. Með topp sem er hægt er að taka af, vélina fyrir aftan og afturhjóla drifinn. Það komu ca.8-10. og einn rauður sem pabbi átti.

Bilar (0 álit)

Bilar Porsche Boxster, ókrýndur konungur roadsteranna, hefur nú fengið smávegis yfirhalningu bæði útlitslega og undir húddinu. Framstuðaranum hefur verið breytt eilítið og loftristar endurbættar. Afturstuðarinn er stærri en áður og bíllinn er þéttari á að líta. Afturljósin eru ný, og búið er að setja glerglugga í blæjuna. Bæði Boxter og Boxter S eru nú öflugri, 228 og 260 hestöfl. Hóflegar breytingar en góðar.

Bilar (0 álit)

Bilar Þessi Toyota Supra tt, sem er mjög mikið breytt, var nýlega til sölu á ebay. Skilar ca. 1000 hestöflum að sögn eiganda, og fer kvartmíluna á ~10sek. http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=1841743794
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok