Bilar Nýr Audi A8 er væntanlegur á markað og kemur td í sölu í UK í maí á næsta ári. Þetta ku vera fyrsti bíllinn í nýrri kynslóð Audi bifreiða og með honum eru línur næstu kynslóða A2, A3, A4 og A6 lagðar. Bíllinn verður boðinn með tveimur V8 bensínvélum. Sú kraftminni er 3.7 lítra, skilar 280 hestöflum og tryggir hröðun upp í 100 km/klst á 7.3 sekúndum. Sú kraftmeiri er 4.2 lítra, skilar 335 hestöflum og tryggir hröðun upp í 100 km/klst á 6.3 sekúndum. Hámarkshraði er takmarkaður við 250 km/klst í þeim báðum. Ein af nýjungum í Audi A8 er 6 gíra sjálfskipting með Tiptronic handskiptimöguleika en einnig verður hægt að nota handskiptingu sem er í stýrinu en sá búnaður hefur verið þróaður í Audi R8 í Le Mans kappakstrinum. Nýji Audi A8 verður að sjálfsögðu smíðaður úr áli eins og fyrirrennari sinn sem var kynntur árið 1994. Audi A8 verður kynntur opinberlega á The Paris Motor Show í september nk.