Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.437 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Þessi mynd er af einum af skemmtilegri bílum sem fram hafa komið. Þetta er árgerð 1975 af Citroën 2CV. Fáanlegar vélar voru frá 375cc til 602cc. Minnsti mótorinn skilaði heilum 9 hp en sá stærsti 29. Bíllinn með stóru sleggjuna var heilar 32,8 sekúndur í 60 mílur! Einn vinnufélagi minn átti einn svona þegar hann bjó í Danmörku og hann hrósar þeim bíl í hástert.

Bilar (0 álit)

Bilar Ef ekki er varlega farið þá getur bíllinn sem síðasta mynd var af endað eins og þessi Trans AM :(

Bilar (0 álit)

Bilar Ég get ekki horft lengur á myndina af skemmdum Trans AM, og kem því með skemmtilegri mynd. Apu í þáttunum Simpsons hefur góðan smekk á bílum. Hér er hann að þrífa bílinn sinn sem er að mér sínist 1979-1981 módel af Pontiac Firebird Trans AM :)

Bilar (0 álit)

Bilar JHG sagði að það væri einhver padda í myndakerfinu, svo ég sendi þessa mynd inn til að gleðja hann og prófa kerfið. Þetta er Ford V8, væntanlega 289cid.

Bilar (0 álit)

Bilar Ég get ekki látið það viðgangast að hafa mynd af einhverju dóti frá FORD og sendi því mynd af árgerð 1998 af Pontiac Firebird Trans AM.

Bilar (0 álit)

Bilar Almennt séð er Lotus Elise (hægri) álitinn ansi nettur bíll, en við hliðina á Elan (vinstri) verður hann pínulítið bústinn á að líta. Svona eins og Britney Spears við hliðina á Kylie Minogue…

Bilar (0 álit)

Bilar Samkvæmt www.sniffpetrol.com er bíllinn á myndinni endanleg útgáfa af Bugatti Veyron ofurbílnum. Bugatti eru ekki einir um að fá það rækilega í hneturnar í nýjasta, og hugsanlega fyndnasta, „tölublaði“ Sniff Petrol.

Bilar (0 álit)

Bilar Max Power swedish style? Þessi 600 hesta Volvo 242 minnir líka á eitthvað sem dópsali í lélegri straight-to-video glæpamynd myndi keyra. Menn eru misjafnlega brjálaðir, en píparinn sem á þennan Volvo er sérstakt tilfelli! Meira á http://www.europeancarweb.com/features/0402ec_volvo/

Bilar (0 álit)

Bilar Það eru engin orð sem lýsa þessari fullkomnun!

Bilar (0 álit)

Bilar Þá hefur BMW svipt hulunni af nýja ásnum sínum. Ekki jafn slæmt og ég bjóst við af síðustu njósnamyndum sem ég sá, en mittislínan virðist samt full há. Enginn horror, en mig hlakkar samt til að sjá 3ja dyra útgáfu ásamt tvistinum, sem kemur vonandi fljótlega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok