Fiat Multipla: Það er ekki eins og Mini-MPV geirinn hafi verið uppfullur af fallegum bílum…
Volkswagen verksmiðjurnar hafa kynnt fyrsta 1 lítra bíl í heimi en unnið hefur verið að hönnun slíks bíls síðan 1999, eða frá því að Volkswagen kynnti fyrst bíl með 3 lítra vél. Markmiðið hjá VW verksmiðjunum er að hanna bílvél sem kemur ökumanni 100 km. á einum bensínlítra á sama tíma og kröfum um þægindi og öryggi er uppfyllt. Í ökuferð sem ekin var frá verksmiðjunum í Wolfsburg til Hamborgar, sem er um 230 km. akstur, eyddi bíllinn, þrátt fyrir slæm veðurskilyrði aðeins 0,89 lítrum á hundraði. Meðalhraðinn á leiðinni var 75 km/klst. (tekið af www.hekla.is)
Maður þarf að vera smá klikkaður til að fá sér Caterham. Fólk sem finnst sniðugt að fara með þá út í snjó hlýtur að vera snarklikkað. Þannig fólk merkir ekki við gagnslausan búnað eins og blæju eða þak á aukahlutalistanum. Þannig fólk líkar mér vel við. Þetta átti að vera í jólaseríunni, en ég tileinka þetta íslendingum sem eru ekki haldnir ranghugmyndum um sportbíla, afturdrif og blæjur. Dömur og herrar: Caterham 7 SV, njótið vel, HO-HO-HO! :D
Nýr Renault Clio er væntanlegur í sumar, og innan línunnar er að finna endurbættan Clio 172, sem íslendingar fá vonandi að kynnast sem allra fyrst. Helstu breytingar í nýjum 172 eru nýtt útlit, 16“ felgur í stað gömlu 15”, togmeiri vél sem er enn 172 hestöfl, stífari fjöðrun og endurbætt grind, og meiri lúxus í innréttingu. Ég var aldrei neitt sérstaklega hrifinn af gamla útlitinu, og finnst það nýja skref uppávið. Hann er ekki eins mjúkur og sá gamli, og 16“ felgurnar fara betur en gömlu 15”. Nú er bara að þrýsta á B&L um að flytja þetta tryllitæki til landsins!
Orðrómur er um að væntanleg sé léttvigtar útgáfa af BMW M3. Bíllinn mun heita M3 ClubSport, og verður um 150kg léttari en hefðbundinn M3. Til þess að létta bílinn verður rafstilltu lúxussætunum skipt út fyrir kappakstursstóla úr trefjaplasti, og rafrúðurnar fá einnig að víkja ásamt öllum óþörfum tæknibúnaði. Vélin í ClubSport verður aðeins öflugri en í standard M3, eða 350 hestöfl. Ef orðrómurinn reynist réttur, þá mun bíllinn koma á markað síðar á þessu ári. Góðar fréttir fyrir harðkjarna akstursáhugamenn!