MPV strikes again!!… Svona á nýji Golf að líta út. Lengri og breiðari. Hann verður örugglega álíka stór og strætó eftir 10 ár.
þá er Men in Black 2 að koma út… og þetta er nýji bíllinn. Sjá fleiri myndir á http://www.germancarfans.com.
Renault hefur nú dreift myndum af 2. kynslóð Renault Mégane (Mégane II) sem væntanlegur er á markað árið 2004. Til stendur að bjóða bílinn í 7 mismunandi útgáfum en Renault lætur enn sem komið er duga að dreifa myndum af 3 og 5 dyra útgáfunum sem kallast einfaldlega Sport Hatch og Hatch. Renault heldur því fram að 3 orð hafi verið höfð að leiðarljósi við hönnun bílsins. Compact, expressive og dynamic. Hvort mönnum finnist að það hafi gengið eftir er svo annað mál en heldur þykir mér afturendinn vera vafasamur á þessum bíl.