Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.435 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Svipmyndir frá Akinn rúntinum í gær. Nýlegur Malibu(held ég) spólaði sem óður væri, og bíllinn var orðinn ansi slappur eftir allt aksjonið. Svo var einn sem misskildi aðeins og fór að spóla á Toyota jeppanum sínum.. :) Lögreglan kom aðeins inná planið, en menn hættu ekkert að spóla þrátt fyrir það.(nutters!) A.T.H. Vegna þess að myndirnar hérna mega ekki vera nema 32k, þá eru gæðin ekkert til að hrópa húrra fyrir..

Bilar (0 álit)

Bilar Hér er tvíburabróðir Citroën Saxo en VTS og Peugeot 106 GTi (eða S16) eru að miklu leiti sömu bílarnir. Peugeotinn er þó að mínu mati fallegri og líklegast enn skemmtilegri!

Bilar (0 álit)

Bilar Árið 1987 var síðasta framleiðsluár Buick Grand National en í þessum bílum var 3,8 lítra V6 turbo vél!
Aðeins einn svona bíll er til á landinu og er hann 1985 árgerð.

Bilar (0 álit)

Bilar Já þetta er kona!
(Ég er ekki að segja að konur séu heimskar eins og sumir héldu þegar ég sendi síðustu mynd)

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr Audi A8 er væntanlegur á markað og kemur td í sölu í UK í maí á næsta ári. Þetta ku vera fyrsti bíllinn í nýrri kynslóð Audi bifreiða og með honum eru línur næstu kynslóða A2, A3, A4 og A6 lagðar. Bíllinn verður boðinn með tveimur V8 bensínvélum. Sú kraftminni er 3.7 lítra, skilar 280 hestöflum og tryggir hröðun upp í 100 km/klst á 7.3 sekúndum. Sú kraftmeiri er 4.2 lítra, skilar 335 hestöflum og tryggir hröðun upp í 100 km/klst á 6.3 sekúndum. Hámarkshraði er takmarkaður við 250 km/klst í þeim báðum. Ein af nýjungum í Audi A8 er 6 gíra sjálfskipting með Tiptronic handskiptimöguleika en einnig verður hægt að nota handskiptingu sem er í stýrinu en sá búnaður hefur verið þróaður í Audi R8 í Le Mans kappakstrinum. Nýji Audi A8 verður að sjálfsögðu smíðaður úr áli eins og fyrirrennari sinn sem var kynntur árið 1994. Audi A8 verður kynntur opinberlega á The Paris Motor Show í september nk.

Bilar (0 álit)

Bilar Eina myndin sem hefur verið birt af Ferrari FX eins og hann er í dag kallaður. Líklega mun nafnið breytast í F60 eins og við afmælismódel á en því miður heldur FX áfram hefðinni að hvert afmælismódelið verði ljótara en það á undan…

Bilar (0 álit)

Bilar Ég fæ nú hálfgert samviskubit af því að bola Kylie út, en þessi bimmi er bara svo ægilega vígalegur.

Bilar (0 álit)

Bilar Nýjustu Lödurnar á markaðinum http://www.autolada.hg.pl/future.htm og http://www.carenthusiast.com/shows/mo99_pic.htm

Bilar (0 álit)

Bilar Skoda Auto kynnir nýjan coupe Skoda á Bílasýningunni í Genf sem hefst nk. fimmtudag. Nýji bíllinn heitir Skoda Tudor og er byggður á Skoda Superb en sá bíll er byggður á undirvagni VW Passat. Aðeins ein vél hefur verið í nefnd í sambandi við bílinn og er hún 2.8 lítra V6 bensínvél sem á að skila 193 hö

Bilar (0 álit)

Bilar Lotus hefur tilkynnt að stefnt sé að setja Elise á markað í Bandaríkjunum. Ég tel augljóst að nokkrar breytingar þurfi að vera gerðar á bílnum en Lotus hefur tilkynnt að bílar fyrir ameríkumarkað fái mýkri fjöðrun en þeir sem eru seldir í Evrópu. Líklegt þykir að notuð verði önnur vél en Rover K sem hefur verið í öllum Elise framleiddum hingað til. Vélin á að vera um 120hö og verður áreiðanlega notast við mótor sem þegar er á markaðinum vestra. Verðið á að verða $38.500 og mun sölu á Esprit, sem er eini bíll Lotus núna á Ameríkumarkaði, verða hætt.

Ég verð að segja að ég hef sjaldan séð betri þrennu en þá sem er á myndinni en hún er tekin af www.pistonheads.com þar sem fréttina er einnig að finna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok