Ég var að dunda mér við að pólera 16" High Tech felgu af Pontiac Firebird Transam um daginn. Breytingin er ótrúleg. Til að pólera notaði ég ýmsa grófleika af sandpappír og endaði á Metal Polish frá Mothers.
Ég er mjög upptekinn núna að velta fyrir mér þessum snilldar VR “narrow-angle” V-vélum VW. Get ekki sagt annað en ég hrífist af þessum hugmyndum. Á myndinni er vélarblokk W12 vélar, nokkuð sem fékk kjálkann á mér til að nálgast bringuna aðeins. Nú á ég bara eftir að fá að vita meira um V5 vélina stórmerkilegu sem enginn virðist vilja segja neitt um á vefnum. Einhverjir snillingar hér sem luma á vísdómi um hana? Sendið mér skilaboð, eða betra, sendið inn pistil!
Mazda Rx-7 Spirit R árgerð 2002. Eini japanski sportbíllinn sem heillar mig, og á hug minn allan.