Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.435 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta svæði er rosaskemmtilegt leiksvæði fyrir þá sem vilja leika sér á bílunum sínum í hálkunni..

Bilar (0 álit)

Bilar Sá þennan Lotus Elan '66 til sölu á http://www.classicdriver.com. Glæsilegur bíll, en kannski ekki merkilegri en hver annar Elan, nema fyrir það að hafa áður verið í eigu Peter Seller.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er lada sport með additude!

Bilar (0 álit)

Bilar Litli subaruinn minn í góðum gír. 2,1HP og 1,4 kg. Virkar nokkuð vel.

Bilar (0 álit)

Bilar Audi RS6 í samstarfi við Cosworth UK með 475 hestafla á að keppa í North American SPEED World Challenge. Sjá: www.germancarfans.com

Bilar (0 álit)

Bilar Svona bíl sá ég í London fyrir stuttu og í honum eru einhver þau ruddalegustu hljóð sem ég hef heyrt. Vélin er 4cyl 1796cc 179hö og skilar honum í 100km/klst á undir 5sek sem er mjög spennandi. Einn af mínum draumabílum í dag og kostar ekki “nema” rúm 30þús pund.

Bilar (0 álit)

Bilar Svona eiga bílvélar að líta út! Engar plasthlífar yfir öllu dótinu.
Þetta er að mínu mati tilkomumesti Concept bíllinn í dag - Cadillac Sixteen, með sextán strokka 13.6 lítra vél sem skila 1000 hestöflum. Hún er frekar basic og bara 32 ventla en ætti að vera sterk og hagkvæm - mun færri hreyfanlegir partar en í flestum nýjum vélum í dag.

Bilar (0 álit)

Bilar Þessi er til sölu hjá bílahöllinni uppi á höfða, þetta er einn flippaðasti ameríski bíll sem ég hef séð. 8 lítra vél og fjólublá nælon innrétting…

Mér fannst ég eiga heima í rottugenginu!

Bilar (0 álit)

Bilar Jaguar CJX Broadspeed - ég átti svona bíl í bílabrautinni minni þegar ég var polli. Ansi vígalegt tæki, 550 hestafla V12. Bílarnir voru með smekklegar brettaútvíkkanir og kæliraufar, létta skel og þróaðri fjöðrun. Þessir bílar slógu mörg met í tímatökum en endust ekki nógu lengi í akstri til að vinna keppni - flottur samt. Hinn bíllinn í bílabrautinni var BMW sexa í Jagermeister litunum, það kemur mynd af honum síðar.

Bilar (0 álit)

Bilar Matra Murena er ákaflega áhugaverður franskur sportbíll. Grindin er galvaniserað og húðað stál en ytri byrði er úr plasti. Vélin er fyrir miðjum bíl, á þessari “S”-gerð frá 1984 2.2l og 142 hestöfl, en það merkilegasta er að bíllinn er þriggja sæta, með þrjá stóla frammí! Þessir bílar er heldur fágætir og verð í samræmi við það þótt hann sé varla dýr, enda sérstakur bíll.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok