Mille Miglia 1955, þá gat hver sem hafði þokkaleg fjárráð og áhuga keppt í alvöru kappakstri. Benzarnir tveir á myndinni kepptu báðir 1955, þeir eru óneitanlega glæsilegir og þið getið ímyndað ykkur hvernig hefur verið að sjá þessa bíla í aksjón á þessum tíma.
Ég er ákaflega veikur fyrir köntuðum ítölskum bílum. Þessi Maserati Ghibli Cup fellur því vel í kramið hjá mér og tveggja lítra, 326 hrossa, tveggja túrbínu V6 skaðar ekki. Ef ekki væri fyrir sterabólgin brettin væri þetta úlfur í sauðagæru.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..