Þessi bíll er frekar snirtilegur og það væri nú ekki leiðinlegt að sjá svona græju á götunum!!!!Mig langar í þennan:)
Nei ég ætla nú ekki að ljúga því að ykkur, en miðað við þessa tvo bíla sem ég sendi inn frá suzuki. Þá sýnist mér þeir vera að gera stórkoslega hluti varðandi “rallið”. Hinn var árgerð ´96 en þessi er ´98. Og þetta er litli bróðir ef þú vilt kalla hann það (miðað við hö-in) þessi er ekki nema 781 og er undir 3,5 í 100. Ætli þetta velti ekki á því hvað ökumaðurinn sé fljótur að skipta um gír. Því að hann er 6 gíra beinskiptur. (ætli hann nýti ekki gírana mun betur en corolla 1300 g6) ;)
Fyrsti bíll Lamborghini, 350GT kom fram 1964. 350GT var settur til höfuðs Ferrari og var að mörgu leiti fremri. 5 gírar á móti 4 hjá Ferrari, nútímalegri fjöðrun ásamt diskabremsum. Allt í allt fágaðri, hljóðlátari, auðveldari og vandaðri bíll en t.d. Ferrari 275. Ágætis aksturstól og Grand Tourer. Ekki hefur 3.5l DOHC V12 heldur skemmt neitt fyrir!
Porsche fór sigurgöngu um heiminn með þessum bíl 1973. Fjöldi kappaksturssigra en sá sætasti hefur verið þegar Herbert Müller og Gijs van Lennep unnu síðasta Targa Florio kappaksturinn á Sikiley. Heimamenn bundu miklar vonir við öflugri bíla Ferrari og Alfa Romeo en þeir féllu úr keppni og Porsche 911 RSR vann enn einn sigurinn.
bleikur ZO6? í alvöru? ..neeei, bara einhver fönkí ljós sem breyta litnum ;) myndin var tekin á NAIAS bílasýningunni btw. corvette ZO6 er merkilegur bíll. götukappakstursútgáfa, og mikið fyrir peninginn. 385 hestafla, 5.7lítra 8cyl vél, 525nm, 4.0sek í hundrað, 281km/h. ZO6 er með lægri gírhlutföll en venjuleg corvetta, og stífari undirvagn. og.. hann fæst aðeins með 6gíra kassa, ekkert sjálfskipt!(amen to that)