Bilar Porsche fór sigurgöngu um heiminn með þessum bíl 1973. Fjöldi kappaksturssigra en sá sætasti hefur verið þegar Herbert Müller og Gijs van Lennep unnu síðasta Targa Florio kappaksturinn á Sikiley. Heimamenn bundu miklar vonir við öflugri bíla Ferrari og Alfa Romeo en þeir féllu úr keppni og Porsche 911 RSR vann enn einn sigurinn.