1972 Pro Dodge Challenge
Ascari KZ1, breskur ofurbíll sem á að tefla fram gegn ekki ómerkari bílum en t.d. Ferrari 360 Modena. KZ1 verður knúinn áfram af v8 vél, líklega frá BMW. Grind og yfirbygging eru gerð úr karbon trefjum, og ætti bíllinn að vega um 1100- 1200kg. Hönnun og frágangur bílsins að utan sem innan er fágaðri en í flestum bílum sem framleiddir eru í jafn litlu magni, en áætlað er að framleiða um 100 KZ1 á ári. Myndin er gerð í tölvu og því miður sú besta sem ég fann á netinu af bílnum..
Wanker eða töffari getur hver ákveðið fyrir sig um eigandann, en þetta er mini Ferrari replica byggður á Toyota MR2 grind! Myndin er af síðunni <a href="http://www.pistonheads.com">www.pistonheads.com</a>. Góð síða.
Hér sjáum við prófunarútgáfu 2003 árgerðarinnar af WRC útgáfu Ford Focus. Eins og menn sjá fljótt hefur Kamm Type þakspoilernum, sem hannaður var eftir miklar vindgangaprófanir árið 2000, verið fórna fyrir annan mun stærri spoiler sem virðist við fyrstu sýn vera ansi líkur þeim sem sést hefur á Peugeot 206 WRC.