Kann ég ekki að setja myndir inn í korkinn svo ég ákað að reyna þetta.
Hyundai kynnti nýja útgáfu af WRC bílnum sínum í gær, Hyundai Accent WRC3. Útlitslega séð eru breytingarnar ekki miklar, helst má þar nefna minniháttar breytingu á framenda með það í huga að bæta loftflæði. Stærsta breytingin liggur hinsvegar undir húddinu en þar er heldur betur búið að taka til hendinni en einnig er komið nýtt fjöðrunarkerfi, bremsukerfi og mælaborð. Verður athyglisvert að fylgjast með gengi Freddy Loix og félaga á Korsíka núna um helgina.
Þetta er einhverskonar hugmyndabíll byggður á Mazda MX-5 Miata. Þeir sem eiga sök á þessu eru Sketch Farm og ef þeir enda ekki bráðlega á funny farm mega þeir búast við undirrituðum í heimsókn með Molotov kokkteila og lítinn riffil.
Lotus 340R, aðeins breyttur. Með gegnsæju boddíi og framrúðuna rifna af til að minnka vindmótstöðu. Innréttingin (ekkert voða mikið á upprunalega bílnum en samt meira en ekki neitt) hefur öll verið tekin út og eftir er stýri og sæti. Svo hafa aurhlífarnar og allt annað óþarft verið rifið af til að minnka þyngd. Þessi bíll keppir í ‘hillclimbing’ í Bretlandi og er í eigu Lotus Cars. Meiri upplýsingar og betri myndir á http://www.340r.net/news/expose/expose.htm
1999 Camaro SS. Þessi bíll er með aukapakka frá SLP Engineering sem er fyrirtæki sem