Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.435 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr Renault Clio er væntanlegur í sumar, og innan línunnar er að finna endurbættan Clio 172, sem íslendingar fá vonandi að kynnast sem allra fyrst. Helstu breytingar í nýjum 172 eru nýtt útlit, 16“ felgur í stað gömlu 15”, togmeiri vél sem er enn 172 hestöfl, stífari fjöðrun og endurbætt grind, og meiri lúxus í innréttingu. Ég var aldrei neitt sérstaklega hrifinn af gamla útlitinu, og finnst það nýja skref uppávið. Hann er ekki eins mjúkur og sá gamli, og 16“ felgurnar fara betur en gömlu 15”. Nú er bara að þrýsta á B&L um að flytja þetta tryllitæki til landsins!

Bilar (0 álit)

Bilar Orðrómur er um að væntanleg sé léttvigtar útgáfa af BMW M3. Bíllinn mun heita M3 ClubSport, og verður um 150kg léttari en hefðbundinn M3. Til þess að létta bílinn verður rafstilltu lúxussætunum skipt út fyrir kappakstursstóla úr trefjaplasti, og rafrúðurnar fá einnig að víkja ásamt öllum óþörfum tæknibúnaði. Vélin í ClubSport verður aðeins öflugri en í standard M3, eða 350 hestöfl. Ef orðrómurinn reynist réttur, þá mun bíllinn koma á markað síðar á þessu ári. Góðar fréttir fyrir harðkjarna akstursáhugamenn!

Bilar (0 álit)

Bilar Hjálpið mér að ná sambandi við alla sem eiga mini á Íslandi. Verðum að fá smá sona á Laugaveginn einhverntíman!

Bilar (0 álit)

Bilar Í tilefni af Toyota umræðunni á korkunum fannst mér við hæfi að senda inn þessa mynd sem er nokkuð skondin!

Bilar (0 álit)

Bilar Tommi Makinen hér á ferð við prófanir á Subaru Impreza WRC í Monte Carlo í seinustu viku. Þetta var ein af fyrstu myndunum sem var birt af honum undir stýri á Subaru Impreza og kættust fellow Subaruaðdáendur í UK mikið við þá sjón en þeir hafa nú margir hverjir tekið upp á því að kalla hann GOD.

Bilar (0 álit)

Bilar Bebecar segir að honum finnist þessir bílar pínu brútal… :)

TVR Cerbera Speed 12: 7.7l V12, ca. 800hö og bíllinn var eitthvað um tonnið, mad, bad and dangerous to know. ;)

Bilar (0 álit)

Bilar Varð að setja inn betri mynd en bebecar sendi af Europa. Ég get ekki alveg sagt að hann sé ljótur en þetta er ákaflega einkennilegur bíll í útliti. Hann er hinsvegar mjög lítill og mér þætti gaman að sjá hann í alvörunni.

Bilar (0 álit)

Bilar Nokkuð skemmtileg mynd sem ég náði af eldri konu bakka á mánaðargamlan Daihatsu Cuore fyrir utan eldhúsgluggann minn. Var að horfa á hana bakka,af tilviljun með myndavél. Þegar ég smellti af voru bílarnir rétt að byrja að snertast. Svo varð meiri klessa. Daihatsuinn skemmdist ótrúlega mikið en Carinan mjög lítið.

Þetta minnir mann á að konur kunna ekki að leggja bílum og muna að horfa aftur á bak þegar maður bakkar.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er líklega photoshop, en samt.

Bilar (0 álit)

Bilar Ótvíræður sigurvegari í seinustu könnun, Subaru Impreza WRX. Í 2. sæti var Focus RS, CTR og Cooper S deildu með sér 3. og 4. sæti og Clioinn rak lestina.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok