Það eru reyndar til margar útfærslur af þessu, og þetta er svona sennilega nýjasti útúrsnúningurinn á þessum texta, upprunalega útgáfan var eitthvað á þessa leið að mig minnir. Jólasveinar ganga um gátt með gildan lurk í hendi, móðir þeirra hrín við hátt og hýðir þá með vendi Upp á hól, stend ég og kanna níu náttum fyrir jól þá kem ég til manna Mig minnir að hann hafi verið svona í bók eftir Árna Björnsson, þjóðháttafræðing, man þó ekki allveg í svipinn hvað bókin heitir. En söngtextar eins...