Bara svona svo þú vitir það, þá er ég með sveinspróf í bifvélavirkjun, og já ég er með vsk-númer og gef upp mína vinnu, takk fyrir. Ekki alhæfa eitthvað sem þú veist ekkert um.
Ég myndi athuga með allar vacuum slöngur í húddinu, einnig myndi ég kíkja á hægagangsmótorinn/rofann. Þetta er svona það fyrsta sem mér dettur í hug. Annars er best að fá úr því skorið með því að láta lesa af bílnum.
Til að gera bílinn góðan fyrir utan ryð… þyrfti að kíkja á drifloku,öxul v/m framan, hann brennir aðeins olíu, ljósin hafa átt það til að detta út, og mætti alveg fara að kíkja á bremsur. En ryðið er stærsta vandamálið.
Það er mjög sennilegt að það sé orðið ónýtt/lélegt jarðsamband á mótornum, mjög algengt í þessum vögnum. Það eru semsagt, tveir kaplar sem eru skrúfaðir á blokkina framanverða(tímaloksmegin) hvalbaksmegin í húddinu. Ekki það skemmtilegasta að komast að þessu, en ég myndi athuga með þetta, prófa að taka á þessum köplum(liggja rétt við olíukvarðann). Eins ef þú ætlar að athuga með bensínsíuna, þá er hún undir bíl beint framanvið bensíntankinn, ef hún er ekki þar, þá er hún í tanknum. En ég...
Volvoinn minn heitir Gustaf III eins og hinir 240 Volvoarnir mínir. Jeppinn, Agnesarskelfirinn (löng saga) oftast bara kallaður Skelfirinn. Sá þriðji hefur ekki enn verið nefndu
NP-205 er með 1,96:1 í lága, og er jú sennilega einhver sterkasti millikassi sem þú getur fundið. En ein spurning, hvað er framan við millikassann? Af því að sumir vilja meina að lága drifið sé ekki nógu lágt fyrir venjulegan gírkassa. Og fara því margir útí það að fá sér ló-gír. Ég persónulega er með modified NP-205 “Twin stick” og 4ra gíra trukkabox fyrir framan.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..