Það má vel vera. Mín reynsla af japönskum bílum er því miður ekki mjög góð. Dæmisaga um mun á japönskum og öðrum: Frændi minn átti toyotu corollu '87, hann fer og ætlar að láta skipta um olíu, síur og eitthvað nema gaurinn á stöðinni gleymir að láta tappann í pönnuna og eftir ca 5km bræðir tíkin úr sér. Aftur á móti átti annar frændi minn gamlan Studebaker og keyrði hann olíulausann frá Reykjavík til Keflavíkur og ekkert gerðist. P.s Hann keyrði EKKI hægt og rólega heldur var kerran þanin.