Hvaða rugl er þetta í þér, gamlir vollar eru með treustari bílum sem þú færð, já þeir eyða slatta en samt engu rosalegu og þeir bila ekkert mikið. Allavegana ekkert meira en aðrir bílar á sama aldri og mjög sennilega minna. Það er hægt að fá þá á slikk og þeir skila þér undantekningarlítið frá A-B.
Bleika ógeðið er svo handónýtt að það er ekki fyndið, allur styrkur úr honum, hann myndi sjálfsagt brotna niður ef maður færi yfir hraðahindrun á honum.
K&N síur flæða jú eitthvað betur en std. síur en, það að vélar slitni hraðar það hef ég ekki heyrt áður. Og ef það væri raunin að vélarnar slitnuðu hraðar sökum ryks og óhreininda, þá fyrir mína parta verð ég að segja að þá getur loftsían ekki verið að gera sitt gagn. Finnur engan uber mun, ef sían gæfi 13%aflaukningu(sem hún btw gerir ekki) þá tækirðu laglega eftir því. Felst munurinn ekki bara í hreinni síu sem flæðir aðeins betur?
Er nýbúinn að versla mér '79 Chevrolet Sport Van á "35, 350 vél og thm 350 skipting. Fljótandi fjórtán bolta að aftan. Millikassa og framhásingu á ég hreinlega eftir að athuga.
Fjórtán bolta fljótandi er náttúrulega klettþung, en aftur á móti þrælsterkur. Ég setti svona undir vaninn hans pabba þegar 12boltinn fór að svíkja. Og 400 skiptingin er nánast ódrepandi, slatta þyngri en 350, en líka verulega mikið sterkari. Og já það eru ca.100kg sem munar á 350 og 6.2.
Jahá, fyrst verið er að fara út í öfgar í þessum vélamálum er þá ekki bara málið að setja 1600cc vél í þessa blessuðu replicu. Var ekki annars 1600 vél í gamla AC Ace, mig minnir það. Og ég sem chevy maður vil sjá 572 Chevy oní húddið á kvikindinu!!!(þó svo að fordari ætti þar betur heima)

Old Chevy's never die, they just go faste
Já rallýbíll, gott hjá honum, en orðið þarna á undan bíll er rallý, ekki sport þannig að hvað er hann að gera á sportbílasýningu. Og það þarf enginn að segja mér að 206 sem maður kaupir úr umboðinu sé sambærilegur við keppnisbíl í rallý. Ekki það að ég ætli að hengja neinn upp á það.

Old Chevy's never die, they just go faste
Já, það verður bara að vera þitt álit, Peugeout 206 er smábíll, og er ef ég man rétt seldur sem smábíll.

Old Chevy's never die, they just go faste
Nei ekki, þannig séð, mér finnst þannig séð, að fernra dyra bílar séu ekki sportbílar og ekki heldur tveggja dyra smábílar eða tvennra dyra bílar smíðaðir upp úr fernra dyra bílum. En það er bara mitt álit.

Old Chevy's never die, they just go faste
Ágætis sýning svoleiðis, ekkert allt of frábær samt, mín spurning hljóðar svo, eru Suzuki Ignis, Peugeot 206 og Citroen C3 sportbílar?? en Polo. En já allavegana, svo var líka eitthvað skrýtið lið þarna að sleikja Nissan Almera!! Annars ágæt sýning.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..