Stoke City hefur samið við framherjann Graham Fenton til eins mánaðar og mun hann líklega leika með liðinu í fyrsta leik tímabilsins gegn Wycombe á laugardaginn. Fenton, sem er 26 ára gamall, er fyrrverandi U-21 árs landsliðsmaður Englendinga.