Þjóðverjar hafa bannað báða Wolfenstein leikina! Samkvæmt Þýsku stjórnarskránni er allt sem tengist nasisma og þjóðernishyggju bannað í landinu, t.d. er bannað að eiga hakakrossa eða sýna þá í landinu og þess vegna hafa Þjóðverjar bannað báða Wolfenstein leikina þar sem finna má hakakrossa og alls kyns nasistamerki í þeim.

Þetta er auðvitað bara asnalegt og heimskulegt í alla staði að leyfa fólki ekki að eiga hakakrossa og dýrka nasista ef það vill það, ekki það að ég sé að segja að það sé rétt heldur finnst mér að hver maður eigi að fá að ákveða það fyrir sjálfan sig. Jafn asnalegt er að banna þennan leik og er það bara hreinn fasismi.

Ég er reyndar viss um ef að leikur þar sem ætti að skjóta gyðinga kæmi á markað yrði hann bannaður en auðvitað ætti líka að leyfa þannig gerð leikja og afnema öll þau lög í Evrópu sem stuðla að ritskoðun og ættu Evrópubúar umsvifalaust að taka sér Bandaríkjamenn til fyrirmyndar í þeim efnum og gefa öllum aðilum jafnan rétt til þess að tjá sig.