Heyriði ég var að spá. Þegar það er eitthvað vandamál með tölvuna ykkar.
T.d. þið getið ekki látið netið virka, eða það er vírus eða eitthvað.
Taliði við sjálf ykkur?
Eins og þegar ég er að reyna að leysa eitthvað vandamál þá tala ég eins og andskotinn. Er alltaf bara svona í hálfum hljóðum “Ok hvað gæti þetta verið? Gæti verið.. hmm kíkja í connection settings.” Síðan þegar vandamálið er komið þá “JAAÁ aaaauðvitað afhverju hugsaði ég ekki út í það djöfull er ég heimskur ok komið ok fara á netið.”