Já, í vikunni tilkynnti MS að með næsta Windows Update'i kemst það að því hvort þú hafir undir höndunum ólölega útgáfu af stýrikerfinu þeirra með því að sannreyna lykilinn þinn, og býður þér þá að kaupa XP eintak ellegar segja þeim hvar þú varðst þér úti um þitt eintak, og já þú þarft að framvísa kvittunum fyrir því í þokkabót.

Þessa aðför kalla þeir Genuine Advantage, en hægt á að komast framhjá þessu með einföldum hætti;

Áður en þú smellir á ‘Custom’ eða ‘Express’ takkana, paste'aðu þá þessari línu í address-slánna og sláðu á Enter:

javascript:void(window.g_sDisableWGACheck='all')

Þetta ætti að koma í veg fyrir að serial lykillinn þinn verði athugaður. Annars sel ég þetta ekki dýrara .. fannst sjálfsagt að benda áhugasömum á þetta ;)
-axuz