Einn morgun, er við sátum við borðið og vorum að skrópa í stærðfræði(samt ekki skrópa, því fjarvist frá stærðfræði í fyrsta tíma á morgnana er afsakanleg þar sem heilinn er ekki tilbúinn fyrir stærðfræði). Við þurftum heldur enga stærðfræði því við vissum vel svarið, svarið við alheimsspurningunni, 42. Eina sem okkur félagana vantaði var spurningin við svarinu og við vissum vel að hana myndum við aldrei fá í stærðfræðitíma.

Þannig við sátum þarna við borðið og blöðuðum í bókinni með svörin, þið vitið öll hvaða bók við eigum við (HHGTG fyrir ykkur einkar fáfróðu og einmannalegu sálir sem ekki vissuð þetta fyrir), við sátum þarna og flettum fram og til baka í bókinni og enduðum svo í formálanum, þar sem einmitt eru leiðbeiningar fyrir alla þá sem vilja komast burt af þessari plánetu (mælum með að þið fáfróðu sem ekki þekktuð HHGTG gerið þetta, því það er engin þörf fyrir ykkur hérna). Þegar við sátum þarna og lásum formálann datt okkur eitt snjallræði í hug, við settum öll símanúmerin sem gefin eru upp(NASA, Hvítahúsið, Kreml og Vadíkanið) upp sem stærðfræði dæmi.

Símanúmerin sem eru; (713) 483-3111 , -(202) 456-1414- , 0107-095-295-9051 , 011-39-6-6982.

Á stærðfræðimáli leggst þetta því upp sem ; (713)*483-3111-(202)*456-1414-0107-095-295-9051011-39-6-6982. Svo slógum við þessu inn í vasareikninn(Casio fx-9750g) og fengum út svarið -8810793. Síðan tókum við svarið(-8810793) og bættum við ártölunum sem stendur undir formálanum(1983, 1985 og 1986) slógum því inn:
+1983+1985+1986 þá fáum við út : -8804839

þá tölu tókum við og deildum með 5, vegna þess að bækurnar eru 5.
slógum því inn : -8804839 / 5
fengum út : -1760967.8
þessar tölur tókum við svo og lögðum saman.
slegið inn:
(-1)+7+6+0+9+6+7+8 og viti menn!
útkoman sem við fengum, var 42!

það er því augljóst, að alheimspurninguna um the “life, the universe and everything”(lífið, alheiminn og ALLT fyrir þá sem ekki eru góðir í engilsaxnesku; aka ensku). Má finna í formála the ultimate Hitchhikers Guide.

Þið sem teljið þessa grein rugl, þvælu, bull og vit-leysu viljum við segja. Lesið Hitchhikers Guide og finnið tilganginn, eftir lesninguna munuð þið sjá að þessi grein er EKKI bara þvæla, rugl, bull og vit-leysa. Þetta er sönn speki, sannleikurinn sjálfur beint úr bók svaranna, vísdómsins og viskunar.

RastaFar1
–krizzi–