Maður er nú búinn að vera að sánka að sér hörðum diksum smátt og smátt í gegnum tíðina og er nú kominn með 5 kvikindi í tölvuna og er einnig með 2 skrifara.
Og maður verður nú bara frekar ringlaður á að líta á mycomputer og ákveða hvaða drif maður á að fara í til að finna eða gera nokkurn skapaðan hlut (það eru öruglega margir sem hafa það verra en þessi flækja er meiri en nóg fyrir mig)

Ég var hinsvegar að pæla hvort það væri ekki hægt að sameina svona 3 til 3 diska undir einn drif staf og losa smá um þessa bölvuðu flækju?
Hva, stafsetningarvilla,,,,,,